Sony Xperia XA Ultra - Efni deilt með tækjum á heimaneti

background image

Efni deilt með tækjum á heimaneti

Þú getur skoðað eða spilað efni sem er vistað í tækinu þínu í öðrum tækjum, eins og til

dæmis í sjónvarpi eða tölvu. Þessi tæki verða að vera á sama þráðlausa neti og geta

verið Sony-sjónvörp eða -hátalarar. Þú getur líka skoðað eða spilað efni frá öðrum

tækjum á heimanetinu í tækinu þínu.
Eftir að þú setur upp deilingu efnis milli tækja, getur þú til dæmis hlustað á tónlistarskrár

sem eru vistaðar í tölvunni heima úr tækinu þínu eða skoðað myndir sem eru teknar með

myndavél tækisins á stórum sjónvarpsskjá.

Skrár úr tæki á heimaneti spilaðar í tækinu þínu

Þegar þú spilar skrár úr öðru tæki á heimanetinu í tækinu þínu virkar hitt tækið sem þjónn

Með öðrum orðum deilir það efni í gegnum netkerfið. Kveikt þarf að vera á efnisdeilingu í

þjónstækinu og tækið þitt þarf að fá aðgang. Það verður einnig að vera tengt við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið þitt.

Samnýtt lag spilað í tækinu þínu

1

Gakktu úr skugga um að tækin sem þú vilt deila skrám með séu tengd við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið þitt.

2

Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á .

3

Pikkaðu á og svo á

Heimakerfi.

4

Veldu tæki úr lista af tengdum tækjum.

5

Flettu í möppur frá tengdum tækjum og veldu lagið sem þú vilt spila. Lagið fer

sjálfkrafa af stað þegar búið er að velja það.

113

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Samnýtt myndskeið spilað á tækinu

1

Gakktu úr skugga um að tækin sem þú vilt deila skrám með séu tengd við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið þitt.

2

Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á

Myndskeið.

3

Pikkaðu á og svo á

Heimakerfi.

4

Veldu tæki úr lista af tengdum tækjum.

5

Flettu möppum frá tengdum tækjum og veldu myndskeiðið sem þú vilt spila.

Samnýtt mynd skoðuð í tækinu

1

Gakktu úr skugga um að tækin sem þú vilt deila skrám með séu tengd við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið þitt.

2

Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á

Albúm.

3

Pikkaðu á og svo á

Heimakerfi.

4

Veldu tæki úr lista af tengdum tækjum.

5

Flettu í möppum tækisins sem þú tengist og veldu mynd til að skoða.

Skrár úr tækinu spilaðar í tækjum á heimanetinu

Áður en þú getur skoðað eða spilað efnisskrár úr tækinu í öðrum tækjum á heimanetinu

þarftu að setja upp skráardeilingu í tækinu. Tækin sem þú samnýtir efni með eru kölluð

biðlaratæki. Til dæmis getur sjónvarp, tölva eða spjaldtölva verið biðlaratæki. Tækið þitt

vinnur sem efnisþjónn þegar hann gerir efni tiltæk fyrir biðlaratækin. Þegar þú setur upp

skráadeilingu á tækinu verður þú líka að heimila aðgang að biðlaratækjunum. Eftir að þú

hefur gert það birtast þess konar tæki sem skráð tæki. Tæki sem bíða eftir að fá heimild

að aðgangi eru skráð sem tæki í bið.

Skráadeiling með öðrum tækjum á heimaneti sett upp

1

Tengdu tækið við Wi-Fi net.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á , finndu síðan og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar

tækis > Efnisþjónn.

3

Dragðu

Deila efni sleðann til hægri.

4

Notaðu tölvuna þína eða annað heimanetsbiðlaratæki á sama Wi-Fi kerfi til að

tengjast við tækið þitt.

5

Tilkynning birtist í stöðustiku tækisins. Opnaðu tilkynninguna og stilltu

aðgangsheimildir fyrir hvert biðlaratæki sem reynir að tengjast við tækið þitt.

Skrefin til að opna efni í tækinu með heimanetsbiðlara eru mismunandi á milli tækja. Skoðaðu

notandahandbók biðlaratækisins til að fá frekari upplýsingar. Ef tækið getur ekki tengst við

biðlarann á netinu, athugaðu hvort Wi-Fi netið virki.

Þú getur einnig opnað

Efnisþjónn valmynd frá sérstöku forriti eins og Tónlistar- eða

Albúmsforritinu með því að draga vinstri brún af heimaskjá forritsins til hægri og pikka síðan á

Stillingar > Efnisþjónn.

Að hætta að deila skrám með öðrum tækjum á heimaneti

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

Deila efni til vinstri.

Aðgangsheimildir stilltar fyrir tæki sem er í bið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Veldu tæki af

Tæki í bið listanum.

4

Veldu aðgangsheimildarstig.

Heiti á skráðu tæki breytt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Veldu tæki úr

Skráð tæki listanum og veldu svo Breyta nafni.

4

Sláðu nýtt inn nýtt heiti á tækinu og pikkaðu á

Í lagi.

114

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að breyta aðgangsstigi á skráðu tæki

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Veldu tæki af

Skráð tæki listanum.

4

Pikkaðu á

Breyta aðgangsstigi og veldu valkost.

Hjálp við að deila efni með öðrum tækjum á heimaneti

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Pikkaðu á og svo á

Hjálp.