Sony Xperia XA Ultra - Skjályklaborð

background image

Skjályklaborð

SwiftKey

®

er sjálfgefið textainnsláttarforrit. Þú getur slegið inn texta með skjályklaborðinu

með því að pikka á hvern staf fyrir sig eða notað SwitfKey

®

flæðieiginleikann til að mynda

orð með því að renna fingri frá staf til stafs.

Þú getur sérsniðið stillingar SwiftKey

®

með því að opna SwiftKey

®

lyklaborð á

forritaskjánum.

1 Eyddu stöfum fyrir framan bendilinn.

2 Pikkaðu til að opna broskalla, eða snertu og haltu inni til að færa inn línulok

3 Sláðu inn greinarmerki.

4 Sláðu inn bil.

5 Pikkaðu til að færa inn kommu, eða snertu og haltu inni til að færa inn texta með raddinnslætti.

6 Birtu tölur og tákn.

7 Skiptu á milli lágstafa, hástafa og hástafaláss .

Frekari upplýsingar um SwiftKey

®

má finna á https://swiftkey.com/.

Skjályklaborð opnað til að slá inn texta

Pikkaðu á innsláttarreit fyrir text.

Skjályklaborðið notað í langsniði

Þegar skjályklaborðið sést skaltu snúa tækinu á hlið.

Þú gætir þurft að breyta stillingum einhverra forrita til að virkja langsnið.

Textainnsláttur eftir stöfum

1

Til að slá inn staf á lyklaborðinu skaltu pikka í stafinn.

2

Til að slá inn stafafbrigði skaltu styðja á venjulegan staf á lyklaborðinu til að opna

lista yfir tiltæka valkosti og velja síðan af listanum. Til að t.d. slá inn „é“, styðurðu á

„e“ þar til annar valkostur birtist og svo, á meðan þú heldur fingrinum á

takkaborðinu, dregurðu að og velur „é“.

Punktur sleginn inn

Þegar þú hefur slegið inn orð skaltu tvípikka á bilstöngina.

Texti sleginn inn með SwifKey

®

flæðiinnsláttareiginleikanum

1

Þegar þú slærð texta inn með skjályklaborðinu skaltu renna fingrinum milli bókstafa

til að rekja orðið sem þú vilt skrifa.

2

Lyftu fingrinum eftir að þú ert búin(n) að slá orðið inn. Stungið er upp á orði byggt á

bókstöfum sem þú hefur dregið upp.

3

Ef orðið sem þú vilt birtist ekki pikkarðu á til að sjá aðra valkosti og velja

samkvæmt því. Ef valkosturinn sem óskað er eftir birtist ekki, eyddu þá öllu orðinu

og rektu það aftur eða sláðu orðið inn, einn staf í einu.

63

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.